Einstök staðsetning í hjarta höfurðborgarinnar í grennd við Laugardalinn og með frábæra tengingu við aðalstofnæðirnar Kringlumýrarbraut og Sæbraut. Umhverfið er gönguvænt með góðri nærþjónustu.
Bílakjallarinn er opinn allann sólarhringinn og er vaktaður með öryggismyndavélum og öryggisvörslu. Vísað er í reglur bílakjallarans um almenna notkun.
Kirkjusandur er samheiti byggðarinnar á Kirkjusandsreit. Svæðinu er skipt niður í A,B,C,D,E og F reit. Almennt er samt vísað til húsanna sem eru Stuðlaborg, Sólborg, Laugaborg og Hallgerðargata 1-11.